Skilmálar
Perfect Clothing ehf, kt. 550610-1160.
Hér eftir nefnt GB Gallery.


Þegar pöntun er gerð í vefverslun og staðfesting á greiðslu hefur borist sendir GB Gallery
staðfestingapóst á tölvupóstfangið sem þú gafst upp og er þá kominn á bindandi
samningur um kaup. Pantanir gerðar á föstudögum, laugardögum, sunnudögum og öðrum
helgidögum verða staðfestar eigi síðar en næsta virka dag kl. 18:30.
Uppgefið verð á síðunni er í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti og er það
verð sem gildir allt kaupferlið, sendingarkostnaður er innifalin í verði. Athugið að það getur verið annað verð í netversluninni en í verslun GB Gallerys.

Netverslun GB Gallery samþykkir eftirfarandi greiðslumáta fyrir pantanir:
kreditkort/debetkort (VISA/MasterCard, VISA Electron/Maestro). Kortafærslur fara fram
á öruggri greiðslusíðu Straums. Það á við um allar greiðsluaðferðir að eftir að
GB Gallery berst staðfesting á greiðslu mun staðfestingarpóstur sendur til þín og
þar með eru viðskiptin staðfest. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar
upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

GB Gallery sendir pantanir næsta virka dag eftir að pöntun hefur verið staðfest.
GB Gallery notast við þjónustu Póstsins sem dreifir vörum innan 3ja virkra daga frá
póstlagningu. GB Gallery býður upp á 14 daga skilarétt sem þýðir að þú getur skilað
vörum sem þú hefur pantað í allt að 14 daga frá þeim degi sem pöntunin berst til þín,
að því tilskildu að varan sé í upprunalegu ástandi og allar merkingar fylgi ásamt kvittun.
Endurgreiðsla fer fram eftir að við höfum móttekið vöruna.

GB Gallery
Ráðhústorgi 7
600 Akureyri
Sími 469 4200

Opið
Mán - fös 10:00 - 18:00
Lau 10:00 - 17:00


GBGallery © Kt 550610-1160 VSK 105210